Fyrir...
1 athugasemd
,,Ég vil ekki þessa drullu..'' ,,Ég vil batmansúpu.''
,,Berjumst fyrir Reykjavíkurflugvelli.'' ,,Við samþykkjum.''


Jájá, ég var að gúgla mig áðan og rakst á þetta. Magnað. Ég átti einusinni bloggsíðu sem ég hélt að væri löngu búið að eyða út úr kerfinu. En svo er raunin önnur, því auðvitað rifjaðist upp hjá mér notendanafnið og lykilorðið. Ég ákvað þá sem snöggvast að smella inn einu bloggi.
Ég man þegar ég stofnaði þessa síðu þá ætlaði ég svoleiðist að taka bloggheiminn upp á annað stig og blogga yfir mig afþví að aðaldriffjöðurin mín í þessum málum var þá Cuntjuice Media ( www.cuntjuice.is ). Það var sjálfur Elías Jóhann Jónsson sem sagði mér það að ef einhver ætlaði að verða fréttamaður Cuntjuice Miðla þá yrði hann sá hinn sami að vera afgerandi penni og iðinn bloggari. Ég að sjálfsögðu tók það á lofti og ætlaði að næla mér í aðgang að Cuntjuice Miðlum þar sem ég þurfti aðeins að auðga annan kostinn sem maður þurfti til að komast inn á síðuna (fyrir þá sem vissu það ekki, þá er ég frábær penni). Ég stofnaði blogg og byrjaði að blogga, um heimsmálin eins og sjá má á eldri greinum. Ekki leið að löngu þar til að heimsbyggðinni var kunnugt hver væri kominn á vefinn og fjöldi gesta á síðunni jókst með hverri mínútunni. Hundruðir lásu, eins og þið sjáið á teljaranum. En svo gerðist allt í einu eitthvað. Það stöðvaðist. Og þar við sat.
Elli.
Ég ætti kannski bara að byrja aftur? Ég ætla þó ekki að ergja ykkur með leiðindabloggum um asnalega pólitík eða hnökralausa jafnréttisbaráttu (stelpur ég stend samt með ykkur), ég bara nenni ekki að tala um það. Heldur ætla ég að veita ykkur innsýn inn í það sem drífur á daga mína og hvað mér finnst skemmtilegt. Þeir sem sakna mín í lífinu sínu mega skoða bloggið mitt. Þar verður ekkert röfl um Vilhjálm frv. borgarstjóra og Gísla Martein að tala um samheldinn hóp. Jesús Kristur, heyrðuð þið viðtalið, meira djöfulsins vælið. En samt fínustu náungar, bara leiðinlegt viðtal.
Villi og Gísli
Svo ég fari ekki mikið lengra með þetta þá ætla ég að enda þetta með vikulegu stökunni minni. Ég kýs að hafa þennan lið inni í þessu svo ég hafi eitthvað til að drífa mig áfram.
1. staka.
Takk fyrir í dag og góða nótt.
Stefán.
Ég er ekkert bjánalegur.

Svona án gríns og án alls Íslandsrembings þá held ég að Magni sé bara án efa já, bara svona einna bestur í þessum þáttum. Ég er ekki viss um að hann vinni þetta en ég orðinn ansi hræddur um að þessi árans Lucas Rossi vinni þetta. Eruði að grínast með að hann sé góður. Hann kann ekki að syngja, hann kann ekki að beita röddinn og hann er líka bara asnalegur. Hann syngur með kokinu og gargar bara eitthvað og þess á milli vælir hann eitthvað sem skilst ekki. Hann er glataður söngvari. Ég efast um að ef þessi Rossi vinnur keppnina verði Supernova mjög góð hljómsveit. Þeir verða hugsa ég bara aldrei góðir. Þetta eru útúrbrunnir rokkhundar sem halda að þeir séu bara þeir allra bestu. Þeir þykjast vita allt um tónlist og tóntækni (svo ég tali aðeins á fagmálinu) en þeir vita ekkert. Þetta eru bara gamlir sukkarar sem eiga ekki eftir að meika það með þessu bandi. Ef það er einhver góð hljómsveit þá er það húsbandið eða The House Band. Þar erum við að tala um góða hljóðfæraleikara og tónlistasrspekúlanta. Mér finndist einna helst að Magni okkar, strákurinn okkar, Íslendingurinn, stolt okkar Íslendinga, frægasti Íslendingurinn og svo ég taki nú fram að hann er nú einusinni Íslendingur og það nokkuð flottur Íslendingur, mjög huggulegur maður, lítur alls ekki illa út og er með glansandi skalla, ekkert hár á höfðinu, smá skegg og fallegt bros. Hvert var ég kominn? Já að hann ætti að stofna band með The House Band. Það yrði góð hljómsveit. Magni er nú einusinni besti rokkarinn í heiminum um þessar mundir. En þetta hlýtur að vera djók. Lucas Rossi? Ha?

Ég fór á Google og skrifaði "Magni" og leitaði af myndum. Þetta var það sem ég fann og ég hélt Magni færi heimsfrægur. Bömmer.
SÁÞ - Ekki trúa öllu!
